Aðalvalmynd

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

24 dagar í Rhodos

08. ágúst 2007 klukkan 17:12
Kæru útskriftarfarar.
 Hér kemur smá upplýsingarflóð:


Flugtímar eru eftirfarandi:

01Sep07  Akureyri-Rhodos-Diagoras Airport GX1470 dep 0825 arr 1805
15Sep07  Rhodos-Diagoras Airport-Akureyri GX1471 dep 1630 arr 2010

Efirfarandi netslóð er heimasíða hótelsins okkar. tjekk it
www.forumhotels.com

 

og svo reglurnar beint frá heimsferðum hér að neðan!
  
 Ágæti Viðskiptavinur 
Um leið og við þökkum þér fyrir að ferðast með Heimsferðum, viljum við árétta nokkur atriði sem reynslan hefur kennt okkur að mikilvægt er að nefna, þegar stórir skólahópar eru að ferðast saman í útskriftarferðir. 
Reglur gististaða Heimsferða á hverjum áfangastað eru mjög skýrar.Til að virða frí gesta á hverjum gististað, eru viðskiptavinir beðnir um að halda eftirfarandi reglur í heiðri: 

  • Ró skal komin á gististað kl. 12 á miðnætti.
  • Ekki má vera í garði eða sundlaug gististaðar á kvöldin og að nóttu til.
  • Valdi farþegi tjóni á íbúð eru allir þeir aðilar sem skráðir eru fyrir íbúðinni ábyrgir fyrir greiðslu á viðgerð eða bótum og krefur hótelið viðkomandi aðila beint. Heimsferðir eru aldrei milligönguaðilar í slíkum tilfellum.
 Fararstjórar Heimsferða veita fúslega upplýsingar og geta haft milligöngu um að finna heppilega samkomu- og skemmtistaði fyrir hópa á vegum Heimsferða. Brjóti farþegar reglur gististaðar, er gististaður í fullum rétti til að vísa farþega af gististaðnum og er ekki skyldur til að endurgreiða farþega gistikostnað, né veita honum aðgang aftur að hóteli. Með ósk um ánægjulega ferð.

Starfsfólk Heimsferða


kveðja ykkar uppáhaldsfólk


Ókei

12. júlí 2007 klukkan 18:02
Það er semsagt ætlunin að nota þessa síðu til að setja inn upplýsingar og eitthvað dót í sambandi við okkar heilögu útskriftarferð. Endilega látið alla vita af þessu, þá geta allir fylgst með. Jei.

Allavega, fyrsta tilkynning:

BORGA FERÐINA FYRIR 17.JÚLÍ!
   -það er að segja ef þú ætlar með. Sem þú ætlar auðvitað að gera, right?

20.000 kallinn á svo að koma inn rétt eftir 17.júlí (ef þú borgaðir með Svarta kortinu), eða það eru upplýsingarnar sem við fáum hjá Landsbankakonum. Þess má þó geta að þær vissu ósköp lítið um það..

Munið svo bara að borga elskurnar. Hver vill ekki þetta?


Og hey, það er líka tattústofa þarna einhversstaðar. Jess! Nú getum við öll fengið okkur MA á rassinn.

L8er

Auglýsing

OMG